Image

Drekkum minna – gefum meira!

Slepptu áfengi í eina viku og gefðu andvirðið til stuðnings mikilvægu starfi Krýsuvíkur. Veldu einfaldlega upphæð hér að neðan og taktu þátt.

Sem stendur eru um 120 einstaklingar sem glíma við mikinn fíknivanda á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík, flestir þeirra ungt fólk í miklum vanda. Það er nauðsynlegt að stytta þessa biðlista, nokkuð sem krefst aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis getum við tekið á móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega og bjarga mannslífum.

Krýsuvík hefur starfað í 40 ár. Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að eflingu starfsins með betur menntuðum ráðgjöfum og samstarfi við fremstu meðferðarstöðvar í Bandaríkjunum. Árangurinn er skýr: um 70% þeirra sem ljúka sex mánaða meðferð eru edrú tveimur árum síðar og snúa aftur út í samfélagið, til náms eða starfa.

Einnig er hægt að styrkja "Edrú viku" Krýsuvíkursamtakanna um 4.500 krónur með því að hringja í 902-7107

Powered by Glaze